Saga Optima
OPTIMA VAR STOFNAÐ OG HÓF STARFSEMI ÁRIÐ 1953
Fyrstu árin starfaði Optima við innflutning og heildsölu á ýmsum varningi, en fljótlega var lögð megináhersla á tvo þætti; annarsvegar sölu á ljósritunarvélum og rekstrarvörum til þeirra, og hinsvegar á sölu á hinu landsþekkta Kosangasi og viðeigandi tækjum. Á áttunda áratugnum var svo sérstakt fyrirtæki stofnað til að annast Kosangasviðskiptin en Optima hafði ljósritunarvélarnar áfram á sinni könnu.
1953 varð Optima fyrst fyrirtækja til að flytja inn og selja ljósritunarvélar á Íslandi, og hefur haldið þeirri starfsemi áfram æ síðan eða í meir en 55 ár. Fyrstu árin var um þýskar vélar að ræða Dupomat sem þóttu frábær nýjung og mikið hagræði á sínum tíma. Hætt er við að einhverjum þætti ekki mikið til þeirra koma í dag.
1965 fékk Optima umboð fyrir Nashua ljósritunarvélar og hefur selt og þjónustað þær alla tíð síðan. Reyndar var nafni vélanna breytt úr Nashua í Nashuatec fyrir nokkrum árum síðan og er svo nú. Árið 1974 var enn brotið blað í þróun þessara véla hérlendis þegar Optima hóf sölu á Nashua ljósritunarvélum sem notuðu venjulegan pappír.
1995 var Optima valið til að hafa með höndum umboð fyrir tölvu litaprentvélarnar frá Xeikon. Þessar tölvuprentvélar byggja á sömu grunntækni og þær Nashuatec ljósritunar- og litaljósritunarvélar sem Optima hefur selt en með nýrri útfærslu og er því um eðlilegt framhald af vöru- og þjónustulínu fyrirtækisins að ræða. Fyrsta Xeikon vélin var sett upp í janúar 1997.
Síðla árs 1995 útnefndi Xerox A/S í Danmörku Optima sem umboðsaðila á Íslandi fyrir Xerox ljósritunarvélar og ýmsan annan búnað og hófst uppsetning þeirra tækja 1996. Fyrstu stafrænu Xerox DocuTech "prentvélarnar" voru seldar og settar upp síðla árs 1998 og í kjölfarið fylgdu m.a. afkastamiklir DocuPrint prentarar og allmargar stafrænar DocuColor litavélar.
Snemma árs 2004 var samstarfi milli Xerox A/S og Optima hætt. Það að vísu stóð ekki lengi því að árið 2006 tók Optima yfir umboð fyrir Xerox PSG sem það hafið haft áður en smávélar og prentrara fóru annað.
Á miðju ári 2007 keypti Optima fyrirtækið Bedco & Mathiasen ehf. Með kaupunum tók Optima yfir nokkur umboð sem höfðu starfað hér á landi í mörg ár eins og til dæmis Scain Coin mynttalningarvélar, Billcon seðlatalningavélar, Bisley skjalaskápa og Rosengrens öryggisskápa.
Með kaupunum á Bedco & Mathiesen opnuðust nýjir möguleikar til áframhaldandi vaxtar, meðal annars var Optima boðið að taka yfir umboð fyrir Wincor Nixdorf í mars 2008. Wincor Nixdorf er mjög framarlega í framleiðslu og sölu á tækjum til banka eins og t.d. hraðbönkum og ýmsum sjálfsafgreiðslukerfum. Optima væntir mikils af samstarfi við þessa nýju aðila á komandi árum
Eins og fyrr segir hefur Optima starfað hér á landi yfir 55 ár og er eitt af þeim fyrirtækjum sem lengst hafa starfað í þessum tæknigeira. Hjá OPTIMA starfa nú 22 starfsmenn, sölu- og tæknimenn til að sinna þeirri þjónustu sem viðskiptamenn fyrirtækisins óska eftir, þetta er öflugur hópur manna með margra ára reynslu í þjónustu og viðgerðum flókinna tækja. Og það er trú okkar sem hjá Optima störfum að árangur fyrirtækisins á þessu sviði megi fyrst og fremst þakka samblandi af traustum tækjum, góðum viðskiptavinum og þeirri miklu áherslu sem fyrirtækið leggur á hraða, fagmannlega og persónulega þjónustu við viðskiptamenn sína.
Eigendur Optima ehf. eru Lárus Fjeldsted stjórnarformaður fyrirtækisins og
Þorsteinn A. Guðnason framkvæmdastjóri Optima ehf.
